top of page

Jazz Bröns / Jazzhátíð Reykjavíkur

Njóttu lifandi jazz tónlistar með ljúffengum bröns á Jörgensen Kitchen & Bar á Reykjavik Jazz festival.

Registration is Closed
See other events
Jazz Bröns / Jazzhátíð Reykjavíkur
Jazz Bröns / Jazzhátíð Reykjavíkur

STAÐUR & STUND

14. ágú. 2022, GMT – 12:00

Laugavegur 120, 105 Reykjavík

VIÐBURÐURINN

Jazzhátíð Reykjavíkur og Jörgensen Kitchen & Bar bjóða gestum upp á einstaka upplifun í formi spennandi jazztóna með gómsætum bröns. 

Jazzinn sjá HJAL kvartett upp á. Hljómsveitin var stofnuð á síðasta ári og hefur spilað reglulega síðan við góðan orðstír. Á efnisskránni hjá þeim eru óútgefin lög eftir meðlimi sem og jazz ópusar, gamlir og nýir, sem eru í uppáhaldi hjá hljómsveitinni. Kvartettinn stefnir á að fara í hljóðver með haustinu og taka þar upp efni sem hefur orðið til á undanförnum misserum.

Hljómsveitina skipa þeir Albert Sölvi Óskarsson á saxófón, Jón Ómar Árnason á gítar, Birgir Steinn Theodórsson á bassa og Helge Haahr á trommur.

Brönsinn sjá kokkarnir á Jörgensen upp á en hann samanstendur af fylltri ommilettu, smælki kartöflum, fersku salati, ristuðu hvítlauksbrauði, beikoni, ávöxtum, bláberjasultu, fylltum sveppum, grilluðum tómötum, svissuðum lauk og pönnukökum. Borinn fram með blóðappelsínu- eða appelsínu mímósu. Brönsinn er á 2.990 kr. 

Viðburður byrjar kl. 12:00 og allir eru velkomnir. 

Bóka borð á jazzbrönsinn hér!

DEILA VIÐBURÐI

bottom of page