top of page

Vínsmökkun á Jörgensen Kitchen & Bar

Við bjóðum upp á vínsmökkun með persónulegu ívafi þar sem Boris, sommelíerinn okkar, leiðir gesti í gegnum upplifunina. Með smökkuninni fylgir diskur með ostum, ólífum, kirsuberjatómötum og brauði, í lokin fær hver gestur smá glaðning.

Vínsmökkun á Jörgensen Kitchen & Bar
Vínsmökkun á Jörgensen Kitchen & Bar

STAÐUR & STUND

Smakkanir Þarf að bóka fyrirfram.

Reykjavík, Laugavegur 120, 101 Reykjavík, Iceland

VIÐBURÐURINN

Við bjóðum upp á vínsmökkun með persónulegu ívafi þar sem Boris, sommelíerinn okkar, leiðir gesti í gegnum upplifunina. Með smökkuninni fylgir diskur með ostum, ólífum, kirsuberjatómötum og brauði, í lokin fær hver gestur smá glaðning.


1. Velkomin í heim vína.

Verð: 11.900 kr. á mann. Lágmarksfjöldi: 8 gestir


Frábær kynning fyrir byrjendur og vínunnendur! Boris kynnir þrjár algengar hvítar þrúgur (Pinot Grigio, Sauvignon Blanc, Chardonnay) og þrjár rauðar (Pinot Noir, Malbec, Cabernet Sauvignon). Lærðu um vínsiði og hvernig matur og vín fara best saman, allt í léttu og skemmtilegu andrúmslofti.


2. Gamli heimurinn vs. nýi heimurinn.

Verð: 14.900 kr. á mann. Lágmarksfjöldi: 8 gestir


Sama þrúga, en mismunandi uppruni! Hér eru Sauvignon Blanc og Cabernet Sauvignon bornar saman frá ólíkum heimshlutum. Smökkun með áherslu á skynjunar eiginleika, mismunandi jarðveg og matarparanir.


3. 5 rauðir kóngar.

Verð: 19.900 kr. á mann. Lágmarksfjöldi: 8 gestir


Fyrir þá sem elska rauðvín! Smökkunin hefst á freyðivíni þar sem Boris kynnir sjálfan sig og vínin sem verða í boði. Síðan eru smökkuð 5 úrval rauðvín. Þessi upplifun hentar vel fyrir þá sem hafa aðeins meiri reynslu og vilja taka þátt í umræðum og vangaveltum um vín.


Smakkanir eru aðeins í boði eftir samkomulagi og þarf að bóka fyrirfram.


Hafðu samband við Boris í tölvupósti: jorgensenmanager@centerhotels.com eða í síma +354 595 8565.

DEILA VIÐBURÐI

bottom of page