top of page

ALGENGAR SPURNINGAR

1. HVAR ER JÖRGENSEN KITCHEN & BAR?

Jörgensen Kitchen & Bar er staðsettur á Miðgarði by Center Hotels við Laugaveg 120, 105 Reykjavík, í miðbæ Reykjavíkur.

2. HVERS KONAR MAT BÝÐUR JÖRGENSEN KITCHEN & BAR UPP Á?

Við bjóðum upp á fjölbreyttan matseðil fyrir hádegisverð, kvöldverð, bröns og barsnarl, með áherslu á bragðgóðan mat og ferskt hráefni.

3. ER HÆGT AÐ FÁ HÁDEGISMAT?

​Já, við bjóðum upp á hádegisverð frá kl. 11:30. Í hádeginu er einnig 2 fyrir 1 tilboð þar sem þú færð tvo rétti á verði eins. Tilvalið fyrir bæði fljótlegan hádegisverð og afslappaða máltíð.

4. ER BRÖNS Í BOÐI?

​Já, við bjóðum upp á brunch alla laugardaga og sunnudaga frá kl. 11:30–15:00. Á brunchseðlinum er fjölbreytt úrval rétta, skoðaðu brunchseðilinn.

5. HVENÆR ER HAPPY HOUR?

Happy Hour er alla daga frá kl. 15:00–18:00. Þá eru valdir bjórar, vín og kokteilar á sérstöku verði. Skoðaðu Happy Hour.

6. ER BARSNAKK Í BOÐI?

Já, við bjóðum upp á sérstakan barsnakkseðil með léttum réttum sem henta vel til að deila með drykkjum. Skoðaðu barsnakkseðilinn.

7. ER LIFANDI TÓNLIST Á STAÐNUM?

Já, það er reglulega lifandi tónlist, meðal annars á Lifandi fimmtudögum þar sem gestir geta notið góðrar tónlistar og Happy Hour. Skoðaðu komandi viðburði.

8. ER ÓKEYPIS INN Á TÓNLISTARVIÐBURÐI?

​Já, það er ókeypis inn á Lifandi fimmtudaga og allir velkomnir. Upplýsingar um einstaka viðburði og tímasetningar má finna á vefsíðunni okkar.

9. ER HÆGT AÐ BÓKA BORÐ?

Já, hægt er að bóka borð í gegnum vefsíðuna okkar. Við mælum með að bóka fyrirfram, sérstaklega fyrir brunch um helgar og á kvöldin. Bókaðu borð hér.

10. HVER ER OPNUNARTÍMINN?

Eldhúsið er opið frá kl. 11:30–21:45 og barinn frá kl. 11:30–23:00.

11. ER VEITINGASTAÐURINN AÐEINS OPINN FYRIR HÓTELGESTI?

Nei, allir eru velkomnir! Þú þarft ekki að gista á Miðgarði by Center Hotels til að njóta matar, drykkja eða viðburða hjá okkur.

12. ERU GRÆNMETIS- OG VEGANRÉTTIR Í BOÐI?

Já, við bjóðum upp á grænmetis- og veganvalkosti. Úrvalið getur verið breytilegt og því mælum við með að skoða matseðilinn eða hafa samband ef þú ert með sérstakar óskir um mataræði.

13. ER BARNAMATSEÐILL Í BOÐI?

​Já, við bjóðum upp á sérstakan barnamatseðil með gómsætum réttum fyrir yngstu gestina.

bottom of page